Belís

Fólksfjöldi: Um 420.000

Tungumál: Ensla

Gjaldmiðill: Belískur dalur (BZD)

Höfuðborg: Belmópan

Country Flag

Belís er lítið land á austurströnd Mið-Ameríku við Karíbahaf, með landamæri að Mexíkó í norðvestri og Gvatemala í vestri og suðri. Nafn landsins, og fyrrum höfuðborgarinnar Belísborgar, er dregið af Belísá. Belís hét Breska Hondúras til ársins 1973. Landið fékk sjálfstæði 1981. Í Belís dafnar fjölbreytt menning og mörg tungumál eru töluð þar, en enska er opinbert tungumál landsins. Innan Mið-Ameríku hefur Belís mikla sérstöðu og er skyldara ríkjum Karíbahafsins, sem einnig eru fyrrum nýlendur Breta. Höfuðborg Belís er Belmópan en Belís er þéttbýlasta borgin og helsta hafnarborg landsins. 

Margir bandarískir háskólar eru með útibú í Belís og, þar sem mun ódýrara er að læra þar en í Bandaríkjunum, stunda um 2.300 Bandaríkjamenn þar nám

Að sækja um

Þrátt fyrir að Belís sé fámennt land er ekki hægt að tala um eitt menntakerfi fyrir landið heldur nokkur samhangandi kerfi. Grunnhugmyndin kemur frá Bretlandi og kerfið skiptist í grunnskóla, framhaldsskóla og háskóla. Að loknum framhaldsskóla taka nemendur breska prófið Cambridge Advanced eða A-levels. Einnig er hægt að taka bandaríska prófið Associate of Arts og það er undir nemendum komið og  hvert þeir stefna hvort prófið þeir velja.

Innlendir háskólar eru þrír og margir erlendir háskólar, þá sérstaklega bandarískir, eru með útibú í Belís. Belís tekur einnig þátt í hinum fjölþjóðlega Háskóla vestur-indía (University of the West Indies) sem er með útibú í Belís.

Sótt er beint um til hvers háskóla fyrir sig. Engar leitarvélar eru til fyrir allt nám í landinu og þær síður sem vísað er á hér að neðan eru e.t.v. ekki með tæmandi upplýsingar.

Námsgráður

Námsgráður í Belís eru ýmist enskar eða bandarískar. Það er afar áríðandi að kynna sér vel hvaða réttindi þær gefa, bæði hvað varðar atvinnuréttindi og rétt á framhaldsnámi.

Skólagjöld

Skólagjöld eru afar mismunandi eftir skólum og gráðum. Mikilvægt er að kynna sér vel hvort Menntasjóður lánar ekki fyrir  fyrir þeim. Ef Íslendingar hafa ekki áður stundað nám við viðkomandi skóla, þarf að sækja sérstaklega um að námslán fáist.

Menntasjóður

Nauðsynlegt er að skoða vel hvort  Menntasjóður lánar til náms í Belís. Ef skólinn er ekki á lista sjóðsins yfir viðurkennda háskóla, er gott að hafa samband beint við starfsfólk hans.

Tenglar