Ítalía
Fólksfjöldi: 59 milljónir
Tungumál: Ítalska
Gjaldmiðill: Evra
Höfuðborg: Róm

Ítalía liggur aðallega á Appenínaskaga sem gengur til suðausturs út í Miðjarðarhafið og minnir í lögun dálítið á stígvél. Að norðan nær landið upp í Alpafjöll. Lönd sem liggja að Ítalíu eru Frakkland, Sviss, Austurríki og Slóvenía. Einnig eru tvö sjálfstæð ríki umlukin af Ítalíu; San Marínó og Vatíkanið eða Páfagarður, sem er hluti af Róm sem er ein af söguríkustu og merkustu borgum Evrópu, stundum kölluð „borgin eilífa“. Í gegnum margar aldir var Ítalía í fararbroddi í Evrópu hvað varðar listir og menningu. Endurspeglast það m.a. í miklu framboði af listaskólum í landinu. Enda hafa Íslendingar helst sótt í listnám til Ítalíu ásamt námi í ítölsku.
Að sækja um
Í landinu eru fjölmargir skólar á háskólastigi, meirihlutinn eru ríkisháskólar en hluti eru einkaskólar. Elsti háskóli í heimi er Háskólinn í Bologna stofnaður árið 1088.
Sumir háskólar eru með sérstakar deildir fyrir útlendinga eða bjóða upp á ítölskunám.
- Slíkt má einnig finna í Dante Alighieri stofnunum og fjölmörgum málaskólum. Í slíka málaskóla er sótt um með því að hafa samband við þá.
Þegar sótt er um háskóla á Ítalíu er best skoða vel heimasíðu skólans en annars er farið í gegnum vefinn Universitaly.
- Með umsókn þarf að fylgja prófskírteini, yfirleitt nægir að það sé á ensku en gott getur verið að athuga hvort krafist sé að þau séu þýdd á ítölsku. Þá þarf að fá löggilta skjalaþýðingu.
Ef óskað er eftir öðrum gögnum s.s. fjárhagsvottorði, prófskírteini og öðru, getur þurft að fá þau stimpluð af ítalska ræðismanninum á Íslandi.
Ef ekki er hægt að senda gögnin rafrænt þarf að senda þau beint til viðkomandi háskóla. Nauðsynlegt getur því verið að gefa sér nægan tíma í þetta ferli.
Til að fá inngöngu í grunnnám í háskóla þarf stúdentspróf, en BA eða BS próf frá Íslandi á að gilda inn í framhaldsnám.
Yfirleitt þarf einnig að sýna fram á kunnáttu í ítölsku eða í ensku, ef námið fer fram á ensku. Háskólarnir veita sjálfir upplýsingar um hvort farið er fram á tungumálapróf og þá hvaða próf þeir fara fram á.
Yfirleitt eru inntökupróf í ítölsku við háskólana í september.
Algeng tungumálapróf, viðurkennd af flestum háskólum:
CILS (Certificazione di Italiano come Lingua Straniera)
CELI (Certificati di Lingua Italiana)
PLIDA (Progetto Lingua Italiana Dante Alighieri)
Tungumálaskólar á Ítalíu
Italian schools, raðað eftir landsvæðum
Tungumálastofnun Dante Alighieri – um alla Ítalíu
Study abroad Italy.com – tungumál, listnám, ofl.
Námsgráður
Laurea
Grunnám á Ítalíu kallast Laurea (180 ECTS) og tekur 3 ár. Þar sem námstími er þrjú ár er gráðan einnig stundum kölluð Laurea trinnale.
Laurea Magistrale
Framhaldsnám, algengasta meistaragráðan kallast Laurea Magistrale/Laurea Specialistica og tekur 2 ár.
Dottorato di ricerca
Doktorsnám tekur 2 ár og skiptist í rannsóknir og kennslu.
Skólagjöld
Borga þarf skólagjöld í nánast alla háskóla á Ítalíu, en þau eru mishá. Innritunargjöld eru á bilinu 1.000 til 1.600 evrur.


Leit að námi
Study in Italy (leitarvél á ensku)
Menntasjóður
Námsmenn geta fengið námslán til tungumálanáms ef það er nauðsynlegur undirbúningur undir frekara nám í landinu. Lánið er ekki greitt út fyrr en sýnt er fram á innritun í frekara lánshæft nám í sama landi eða málsvæði.
Að flytja til
Dvalarleyfi
Ekki þarf vegabréfsáritun til Ítalíu, en námsmenn ættu að fara þangað tímanlega til að skrá sig í landið og koma sér fyrir. Á vefsíðu Schengen samstarfsins má kynna sér málið nánar.
Nauðsynlegt er að skrá sig hjá sínu sveitarfélagi ef dvalist er lengur en í 3 mánuði í landinu. Slíkt er kallað iscrizione anagrafica og til að sækja um það þarf:
- 4 passamyndir, nýlegar og allar eins
- vegabréf og 2 ljósrit af því
- staðfestingu frá skóla um innritun og 1 ljósrit af henni
- staðfestingu á framfærslu (t.d. frá Menntasjóði eða banka)
- Evrópska sjúkratryggingarkortið.
Þegar endurnýja þarf skráninguna þarf að hafa með sér sömu atriði og hér að ofan auk:
- fyrri skráningu í landið (iscrizione anagrafica) og 1 ljósrit af því
- staðfestingu frá skóla um innritun (allt námsárið) og 1 ljósrit af henni
Húsnæði
Húsnæðismál geta verið áskorun fyrir þau sem fara til Ítalíu í nám. Í Flórens, Feneyjum, Bologna og Mílanó er húsnæði dýrt og getur verið erfitt að finna íbúðir við hæfi.
- Húsnæði er yfirleitt leigt með húsbúnaði.
- Sumir einkaskólar sjá um að útvega húsnæði.
- Einkareknar leigumiðlanir kunna að vera góður kostur í upphafi.
Best er að fara utan nokkru áður en skóli hefst til að ganga frá íbúðarmálum og skráningu í landið.
Hér fyrir neðan eru hlekkir á nokkrar síður þar sem hægt er að leita að húsnæði á Ítalíu.
Sendiráð
Sendiráð Íslands gagnvart Ítalíu er í Róm og ítalska sendiráðið er í Osló