Svíþjóð

Fólksfjöldi: 10,7 milljónir

Tungumál: Sænska

Gjaldmiðill: Sænsk króna

Höfuðborg: Stokkhólmur

Country Flag

Svíþjóð er fjölmennast af Norðurlöndunum. Landamæri liggja að Noregi til vesturs og Finnlandi til norðausturs, landið tengist Danmörku með Eyrarsundsbrúnni. Einnig liggur landið að Eystrasaltinu til austurs. Langflestir íbúanna búa í suðurhluta landsins. Talsvert af Íslendingum hafa stundað nám í Svíþjóð, einkum framhaldsnám í raungreinum.

Að sækja um

Skólaárið er frá lok ágúst eða byrjun september og er fram í júní, það skiptist í tvær annir, og eru próf í janúar og að vori.

Til að uppfylla aðgangskröfur fyrir sænskt háskólanám þarf annaðhvort að vera með góða undirstöðu í sænsku eða ensku. Að öðru leyti samsvarar íslenskt stúdentspróf því sænska. Upplýsingar um sænska framhaldsskóla-kerfið má m.a. finna á Antagning.se og Studera.nu.

Hér má finna þýðingu á íslensku framhaldsskólakerfi yfir á það sænska.

Sótt er rafrænt um grunn- og framhaldsnám í gegnum Antagning.se eða University Admissions vefnum (enska útgáfan af Antagning.se). Fullt nám í eitt skólaár er 60 hp (högskolepoäng) og jafngildir 60 ECTS einingum.

Umsóknarfrestur fyrir nám sem kennt er á ensku er í janúar (fyrir haustmisseri).

Umsóknarfrestur fyrir nám sem kennt er á sænsku er yfirleitt síðar að vori.

  • Íslendingar (og aðrir á EES svæðinu) þurfa að sanna ríkisfang með því að senda staðfestingu um það (t.d. með ljósriti af vegabréfi) til að þurfa ekki að greiða skólagjöld.

Kröfur um sænsku- og/eða enskukunnáttu

Það fer eftir því í hvaða nám sótt er um hvaða kröfur þarf að hafa í huga.

Umsóknir áður en fyrra námi lýkur

Ef nemandi er enn í námi þegar sótt er um og verður ekki kominn með niðurstöður, prófskírteini og annað slíkt, gilda sérstakar reglur.

Fái nemendur inngöngu í einhverja af þeim námsleiðum sem sótt var um, kemur tilkynning í tölvupósti og með því að skrá sig inn í kerfið er hægt að samþykkja tilboðið eða hafna því. Sé tilboðinu tekið, fær nemandinn ítarlegar upplýsingar um næstu skref.

Námsgráður

Námsgráður í Svíþjóð eru sambærilegar íslenskum námsgráðum, þ.e. bakkalár, meistaranám og doktorsnám.

Skólagjöld

Engin skólagjöld eru fyrir íslenska stúdenta í opinbera skóla í Svíþjóð. Annað gildir hins vegar um einkarekna skóla.

Leit að námi

Studera.nu – leitarvél, hægt að leita eftir námsgreinum á háskólastigi.

Hversu margir sækja um og hve margir eru teknir inn í einstök fög (hér velja skal “Statistik” (grunnnám)).

Studentum.se – góð leitarvél til þess að leita að m.a. iðnnámi og starfsnámi. Velja þá “Yrkesutbildning”. Yrkesutbildning er allt nám til starfsréttinda hvort sem það veitir rétt til að vera læknir, sjúkraþjálfi, barþjónn, endurskoðandi eða annað. Einnig hægt að leita að háskólanámi. KY stendur fyrir kvalificered yrkesutbildning.

Sænskunámskeið í Svíþjóð

Inetmedia.nu,  upplýsingasíða með öllu mögulegu m.a. menntun.  Hægt er að finna alla skóla, grunnskóla (grundskolor), menntaskóla o.fl.

Nám á ensku

Á síðunni Study in Sweden – má finna leitarvél þar sem hægt er að sjá allt það nám sem kennt er á ensku.

Menntasjóður

Menntasjóður

Að flytja til

Sjúkratryggingar:

Sænskar reglur um almannatryggingar ganga út frá því að sá sem er tryggður búi í landinu. Því er nauðsynlegt fyrir Íslendinga sem ætla að stunda nám í Svíþjóð að flytja lögheimili sitt þangað þannig að þeir séu sjúkratryggðir. Ef námið tekur innan við eitt ár er hægt að nota Evrópska sjúkaratryggingarkortið en annars er einfaldast að flytja einfaldlega lögheimili sitt til Svíþjóðar og svo heim aftur að námi loknu. Frekari upplýsingar eru hér.

Sendiráð

Krækja á sænska sendiráðið í Reykjavík og íslenska sendiráðið í Stokkhólmi.

Reynslusögur

Styrkir

Tenglar