Styrkir til framhaldsnáms í Frakklandi
Sendiráð Frakklands býður íslenskum stúdentum námsstyrki á hverju skólaári.
Styrkirnir, sem í boði eru, ná til allra fræðasviða eru einkum ætlaðir nemendum í meistara- eða doktorsnámi sem hyggjast stunda að minnsta kosti tveggja missera nám í Frakklandi (Erasmus og skiptinemar geta ekki sótt um).
Athugið að margar námsbrautir eru nú í boði á ensku!
Í styrkjunum felast
Mánaðarlegir styrkir til uppihalds, að upphæð 900 evrur fyrir masternám
Mánaðarlegir styrkir til uppihalds, að upphæð 1850 evrur fyrir doktorsnám
Nánari upplýsingar á vef franska sendiráðsins: https://is.diplomatie.gouv.fr/is/accueil/styrkir-til-nams-i-frakklandi
ATHUGIÐ AÐ UMSÓKNARFRESTUR Í ÁR ER 31.MAÍ 2026